Sigmundur svarar ekki

Undirritaður ritaði opið bréf til yfirmanns íþróttadeildar Morgunblaðsins fyrir nokkru, hann hefur engu svarað enn og því skrifaði ég nýtt bréf sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

Mánudaginn 29. október sendi undirritaður tölvupóst á Sigmund Ó. Steinarsson yfirmann íþróttadeildar Morgunblaðsins. Ástæðan var skortur á umfjöllun um stórleik Njarðvíkur og Keflavíkur í Iceland Express deild karla sem fram fór daginn áður. Greinilegt var að Morgunblaðið hafði ekki sent mann á leikinn og einungis skrifaðar 14 línur um leikinn í blaðinu. Einnig var ekki minnst orði á leik Fjölnis og Tindastóls sem fram fór í sömu deild þann sama dag.

Tölvupóstinn skrifaði ég eftir að hafa heyrt í mörgum óánægðum körfuknattleiksunnendum sem hefur þótt Morgunblaðið sniðganga körfubolta oft á tíðum. Í tölvupóstinum spurði ég hann hvers vegna ekki hafi verið sendur maður á stórleik sem Njarðvík – Keflavík er og einnig hvort það væri stefna blaðsins að sniðganga körfubolta.

Viku seinna hafði mér ekki borist svar og ritaði ég því opið bréf sem birt var á vef okkar, karfan.is. Einnig sendi ég blaðið sem lesendabréf í Morgunblaðið með von um birtingu á næstu dögum. Sömu vinnubrögð viðhafði ég í sumar þegar ég skoraði á Skjáinn að sýna körfubolta í stað enska boltans sem þeir misstu. Bréfið á karfan.is fékk vægast sagt góðar viðtökur og yfir 3000 manns lásu bréfið og í dag eru um 4000 búnir að lesa auk þess sem bréfið birtist á öðrum vefjum í heild sinni. Í bréfinu skoraði ég jafnframt á fólk að senda Sigmundi tölvupóst og hvetja hann til að svara mér.

Daginn eftir fékk ég bréf frá Morgunblaðinu þar sem birtingu var hafnað þar sem það hafði birst opinberlega annarsstaðar, á karfan.is. Gott og vel, þeir hafa sínar reglur en ég fór sömu leið og í júní og þá var bréf mitt birt. Kannski ekki eins áberandi málefni.

Ég ritaði því Karli Blöndal ritstjóra blaðsins bréf og sagði honum að Sigmundur hefði ekki svarað mér, Karl svaraði skömmu síðar og sagði hnippa í Sigmund.

Sunnudag fyrir rúmri viku, 14 dögum eftir að ég sendi upphaflegan tölvupóst hafði mér ekki enn borist svar. Ég skrifaði því Karli og Sigmundi tölvupóst og bað um svar. Það hefur ekki borist enn.

Yfirmaður íþróttadeildar Morgunblaðsins velur greinilega að þegja málið í hel, það eru hans vinnubrögð. Ég hef því miður ekki meiri tíma og krafta að sinni til að krefja hann svara og læt þessu máli hér með lokið. Vil þó taka það fram að mér hefur þótt blaðið sinna körfubolta vel síðastliðnar tvær vikur.

Fyrra bréfið

Með körfuboltakveðju

Rúnar Birgir Gíslason

Fréttastjóri karfan.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Kárason

sæll frændi ekki líkt þér ( okkur ) Blöndhlíðingum að gefast upp á svona mönnum sem ekki svara okkur.

bara halda áfram að bögga sauðinn. ég mun klárlega hrista Karl þegar ég hitti hann annað kvöld á leiknum KR - Banvits.

ég kem kannski til köben á laugadag á leið til Ystanbul og það væri gaman að heira í þér hljóðið sendu mér síma númer sem ég get náð í þig  á gustikarason@hotmail.com 

Ágúst Kárason, 19.11.2007 kl. 22:13

2 Smámynd: Rúnar Birgir Gíslason

Hef bara ekki tíma til að þrasa meira, enda virðist þetta vera svipað og eiga við grjót, það gerist ekkert. Þá á ég við Sigmund. Karl svarar meilum og farðu varlega að kappanum, við vinnum ekkert á neikvæðni, bara málefnalegum samræðum.

Sendi þér númerið.

Rúnar Birgir Gíslason, 20.11.2007 kl. 10:12

3 Smámynd: Páll Jóhannesson

Reyndar er einn kostur við það að eiga við grjótið í stað svona manna  - þú getur fært grjótið úr stað en ekki svona þverhausa. Ég er ánægður með þig í þessari baráttu.

Páll Jóhannesson, 20.11.2007 kl. 17:17

4 Smámynd: Ágúst Kárason

Karl mætir stökusinnum á æfingar hjá BUMBUNNI svo ég næ honum bara inni í teig.

annars er Kalli besta skinn og væri búnn að afgreiða þetta mál ef hann gæti, trúi ég!!!!.

Ágúst Kárason, 21.11.2007 kl. 22:54

5 Smámynd: Rúnar Haukur Ingimarsson

Þetta blessaða blað Morgunblað allra landsmanna eða hvað þeir kjósa að kalla sig hafa oftar en þetta skitið í brækurnar eða á maður að segja í blaðið..

Í upphafi sumars ( eða fyrra )þegar verið að var að kynna spá fyrirliða og forráðamanna liðana í efstu deild, þá kom mynd af fyrirliðunum en þá sáu moggamenn sér sér ekki fært að hafa uppi á nöfnunum á fyrirliðum kvennaliðana né telja upp hvaða lið það voru, heldur var bara talinn upp karla liðini og nöfn fyrirliða liðsins og svo sagt að lengst til hægri væru fulltrúar kvennaliðana í deildini ... þetta þótti þeim nú bara fín fréttamenska og urðu moggamenn fúlir þegar sett var ofaní þá fyrir þessi lélegu vinnubrögð.......

Rúnar Haukur Ingimarsson, 25.11.2007 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Rúnar Birgir Gíslason

Höfundur

Rúnar Birgir Gíslason
Rúnar Birgir Gíslason

Skagfirskur tæknifræðingur og mastersnemi í viðskipta og tæknifræði í Árósum og körfuboltaáhugamaður

runar@mikkivefur.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...illlaimogga

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband