"Allt er betra en íhaldið"

Mundi eftir orðum Guðmundar Steingrímssonar 1. varaþingmanns Samfylkingarinnar sem hann lét falla að kvöldi kosningadags á Stöð 2, áðan. Var að lesa ýmsa vef og þ.á.m. blogg Guðmundar þar sem hann vill R listastjórn, eins segir slúðurvefur Mannlífs að nokkrir Samfylkingarmenn vilji R lista stjórn frekar en að ganga til liðs við Sjálfstæðismenn.

En allavega, Stöð 2 fór í heimsókn til Steingríms Hermannsonar að kvöldi kosningadags til að ræða við þá feðga sem voru á lista fyrir sitthvorn flokkinn. Þar sagði Guðmundur að hann lifði eftir orðum afa hans sem pabbi hans hafi notað líka, "allt er betra en íhaldið".

Nú virðist Guðmunudur vera að lena í sæng íhaldsmanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rögnvaldur Hreiðarsson

Skemmtilegur frasi. Sérstaklega ef hann er skoðaður í því ljósi að allir flokkarnir og þá einkanlega samfylking og VG vilja ekkert frekar en komast uppí til sjálfstæðismanna. Þeir eru sjálfsagt líka til sjálfstæðismennirnir sem myndu segja, "allt betra en Ingibjörg".

Rögnvaldur Hreiðarsson, 18.5.2007 kl. 09:02

2 Smámynd: Magnús Þór Jónsson

Hermann Jónason var náttúrulega að eiga við allt annað Íhald, sem barðist við hann um sveitir landsins!!!

Sammála því að ekki er endalausa gleði að finna meðal D og S liða.  Ég hlakka sérstaklega til að sjá Guðlaug Þór og Ingibjörgu saman í liði!!! Glotti allavega út í annað með það par saman í ríkisstjórn!

Magnús Þór Jónsson, 18.5.2007 kl. 09:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Rúnar Birgir Gíslason

Höfundur

Rúnar Birgir Gíslason
Rúnar Birgir Gíslason

Skagfirskur tæknifræðingur og mastersnemi í viðskipta og tæknifræði í Árósum og körfuboltaáhugamaður

runar@mikkivefur.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...illlaimogga

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 36681

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband